Hummmm...................

Ég er alveg að koma aftur......pínu léttari bæði líkamlega og í lund, miklu sterkari þökk sé Orra einkaþjálfara, með síða ljósa lokka af vonandi engum dauðum, með sveigjanlegra bak eftir kírópraktorinn minn og liðugri líkama og sál eftir þrusu jógatíma. Ég er farin að halda að það sé nauðsynlegt að segja upp vinnunni sinni þegar leiðinn kemur og gera bara það sem manni finnst skemmtilegt í smá tíma, eða þangað til það verður líka leiðinlegt. Byrja þá bara upp á nýtt og gera aftur það sem manni finnst skemmtilegt og svo koll af kolli. Það er náttúrulega tilgangslaust að eyða þessari stuttu lífsleið í að gera það sem manni finnst leiðinlegt. En auðvitað kemst maður ekki alveg upp með það, það veit hver heilvita maður. Maður getur þó reynt að setja leiðinlegu hversdagslegu hlutina í skemmtilegri búning s.s að vaska upp (fyrir þá sem eiga ekki uppþvottavél) þá er hægt að kaupa rosalega flotta uppþvottahanska í Besta td. Tigermunstraða með fjöðrum og ef það dugar ekki þá má finna jarðaberja uppþvottalög í búðum bæjarins, nú ef það dugar ekki má setja uppáhalds tónlistina sína á fóninn, ef það svo dugar ekki er kannski ráð á að fá sér nokkrar töflur við þunglyndi...........Það getur ekki verið svona leiðinlegt að vaska upp. Hummmmm......ég ætti kannski að koma aftur seinna áður en ég rugla meira, ég er semsagt ekki alveg komin ennþá :)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rebekka Guðmundsdóttir
Rebekka Guðmundsdóttir

Mars 2010

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband