Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

PLEASE HORN

.........Stendur aftan a ollum bilum, enda eru umferdareglurnar ekki floknari en tad ad FLAUTA og troda ser. Frabaert ad vera loksins komin a leidarenda, flugferdin gekk mjog vel, adeins 9 timar og fekk fyrstu kynnin af indverjum. Pinulitil indversk kona sat hlidin a mer og gaf mer nokkur olnbogaskot i rifbeinin og hellti fullu raudvinsglasi yfir mig, eg fyrirgaf henni strax plassfrekjuna enda voda litil og brothaett. Lentum i Mumbai 10 a manudagsmorgun, tar sem vid vorum sottar og farid med a Hotel Highway Inn. Eg semsagt hitti nokkrar stelpur a flugvellinum sem verda i sama programmi og eg. Hotelinu get eg engan vegin list, en eg mun muna eftir tvi sem eftir er, to a tetta eiga ad vera finasta hotel a indverskum maelikvarda. Eg dro tad ad fara i sturu tangad til i morgun, semsagt iskold og 5 dropar a sekundu, en hun var to mjog god eftir mjog heita og svefnlitla nott. Vid tokum taxa stelpurnar stuttu eftir komuna til Mumbai og heldum nidra strondina JUHU til ad labba um og anda ad okkur Indlandi, fyrsta leigubilaferdin verdur eflaust eftirminnileg, vid nanast toludum ekkert heldur stordum bara a allt bila, kua, mannhafid i obaerlilegri mengun. I morgun baettust fleirri stelpur i hopinn, vid tok 3 klukkutima rutuferd i handonytum mini bus, bara fyndid, manni stod varla a sama tegar allar kyrnar baettust a veginn og rutan byrjadi ad sikk sakka medfram beljunum. Ta helt madur ad rutan myndi fara. Erum annars komnar upp i litid torp sem heitir Lonavala, sitjum rennandi blautar a mjog haegvirku neti eftir ruma klukkutima gonguferd um torpid i migandi rigningu, og tetta er enging rigning i likingu vid rigninguna a islandi. Algjor demba og allar gotur natturulega haug drullugar, enda er allt skitugt her.....ta meina eg allt, meira ad segja lokin a ruminu svo sem betur fer er snyrtipinninn Rebekka med auka lak og silki svefnpoka :) Morgunmaturinn minn i morgun stod saman af einni ristadri braudsneid og coca cola ummhhhh......proteinstangirnar og drykkirnir hafa strax komid ad godum notum.....Hlakka til ad takast a vid naesta dag, forum i einhverja fjallaferd og gistum uppi fjalli. Eg fer ekki til GOA fyr en eftir nokkra daga en nae vonandi ad skrifa eitthvad meira adur en eg fer.....knus og kossar a alla!

PRE-DEPARTURE

Ég er ekkert stressuð og ekki með neinn hnút í maganum.....eða ég held það allavegana, í raun veit ég ekkert hvernig mér líður. Ég veit allavegana að þegar ég lendi í Mumbai verð ég bara glöð og spennt, og fegin að vera komin á áfangastað. Ég fór á æfingu áðan, ég fattaði svo þegar ég var komin upp í World Class að ég gleymdi skónnum...ekkert líkt mér. Sem betur fer var ég þó ekki í Nokia stígvélum því ég nennti alls ekki aftur heim og tók þá skemmtilegu ákvörðun að mæta bara upp í sal í bleikum Adidas inniskóm með nuddkúlum í botninum. Héðan í frá er ég stelpan í bleiku inniskónum. Og ekki skemmdi fyrir að ég var með bleikan brúsa, í bleikum bol og topp.....hummm soldið hallllló. Og ég hataði bleikan fyrir nokkru, pínu skrítin! Ég er komin vel á veg með að pakka og taka uppúr og pakka og taka uppúr, enda veit ég ekkert hvað ég á að taka, enda óþolandi að vita ekki hvort ég kemst í þvottavél.......og ég er með þvottavélaæði, gæti verið að þvo allan daginn. Það versta er að það er ekki jafn gaman að brjóta saman. En það kemur fljótt í ljós annaðhvort mér til mikils ama eða ánægju....spennandi. Ég fékk vinkonurnar í heimsókn í kvöld, algjör yndi. Átum yfir okkur af pizzum en rauðvínið gleymdist alveg, mjög ólíkt okkur. Þó þurfti það ekki þar sem við erum allar svo skemmtilegar fyrir. Tveir dagar til stefnu, ég og Ómar förum út til London á laugardagsmorgun, pöntuðum okkur gistingu á Sanderson, förum út að borða og njótum lífsins. Svo höldum við í sitthvora áttina, hann heim og ég til Indlands á sunnudagskvöld. Er búin að mæla mér mót við 3 stelpur, sem ég kem til með að búa með þennan mánuð á Indlandi, algjör tilviljun að við förum með sama fluginu út. Lítill heimur!

Höfundur

Rebekka Guðmundsdóttir
Rebekka Guðmundsdóttir

Mars 2010

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband